...og sólin hún situr við borðin svo yndisleg....EÐA HITT ÞÓ HELDUR! Ó, nei, mínir kæru lesendur, sú sem situr við borðið hjá mér er hvorki yndisleg né með sól(heim)skinsbros á vör, enda er kl.9:30 á sunnudegi! En þið skuluð samt ekki láta það hvarfla að ykkur að ég sé svona árrisul, nei það er meira þannig að ég er ekkert farin að sofa síðan í gær. Er nefnilega búin að liggja í flensu síðustu daga og tókst í leiðinni að snúa sólarhringnum svona hressilega vel við. Ég ákvað því að fara ekkert að sofa núna af því að ég er að fara í fyrsta prófið á morgun, jæks! Og det er mundlig eksamen i dansk ungdomskultur, fo´fa´en! En ég er s.s. búin að lesa í alla nótt um danska unglingamenningu og er því orðin nánast útlærð í því að vera danskur unglingur, eða svona hér um bil, á ca.90 bls eftir.
Var að ljúka bloggrúntinum með eitursterku kaffi svo ég sofni ekki (ekki alveg laus við meltingartruflanir) og mæli eindregið með því að þið kíkið á síðuna hans Gosa frænda hér http://www.reyniratli.blog.is/blog/reyniratli/ Snilldarpenni þar á ferð. Fór einmitt að hugsa voða mikið um þessa áætlun hreppsins heima á Þórshöfn um að byggja 2000 kinda bú til að bjarga byggðinni á svæðinu eftir að hafa lesið pistilinn hans Gosa um málið.
Gosi er voða svartsýnn á þetta allt saman og get ég að vissu leyti tekið undir þetta með honum. Pabbi minn hefur jú verið fjárbóndi í u.þ.b. 30 ár og ekki veit ég til þess að hann sé ríkur, hann leynir því þá ákaflega vel. Ég hef t.d. ekki tekið eftir því að hann hafi haft efni á því að borga aukastarfskrafti laun og þó er hann með um 800 fjár.
Ef þetta risabú á að skapa 2-3 ný störf þá má svo sem líta svo á að Bakkfjarðarbyggðinni sé borgið, eða hefur ekki alltaf verið talað um að það búi bara tveir þar? Annar getur gefið á kvöldin og hinn á morgnana múhehehehehe...
Held samt að Þórshafnarhreppur ætti að sleppa því að byggja þetta nýtískuhús og kaupa bara rollur fyrir afganginn. Það má svo bara skella þeim í salinn í þessu risastóra íþróttahúsi sem keypt var fyrir hlutabréfin sem hann seldi í Hraðfrystistöðinni (sterkur leikur...). Þær geta t.d. hitað húsið upp, en við sem þekkjum þarna til vitum hversu óhemjudýrt það er að kynda þarna. Það má raða skjátunum í veggina og dreifa þeim í sundlaugina líka til upphitunar. Ef þetta er gert svona sé ég ekki betur en þetta sé win-win-situation. Rekstri Versins bjargað -tékk! Bakkafirði bjargað- tékk! Og miklu fleiri rollur = fleiri störf = Þórshöfn bjargað- tékk! Vona bara að hreppsnefndin fari að mínum ráðum, því þá verðu allt í gúddí!
En jæja, aftur að unglingamenningunni athyglisverðu......
Yfir og út.
Dóra bjargvættur landsbyggðarinnar.