DRAUMAVERÖLD HÖDDU PÖDDU

Þú getur ennþá snúið við...

17.01.2008 18:45:47 / hofsdora

Annað líf, betra líf...

Sælt veri fólkið og gleðilegt árið!

Þá er jólafríinu lokið, maður kominn aftur í borgina og byrjaður í skólanum á ný. Þó jólafríið hafi verið fínt, mikið borðað af keti og sætindum, mikið sofið o.s.frv., þá er voða gott að reyna að koma einhverju skikki á tilveru sína aftur, t.d. að snúa sólarhringnum af næturvaktinni yfir á dagvaktina. Það liggur hreinlega við að maður sé hálfpartinn kominn með leið á kjöti og sætindum þótt ótrúlegt megi virðast. Ég varð allavega mjög glöð að fá fisk í gær sem Gulla bauð í, og það var nú ekki fiskur af dónalegri endanum heldur ferskur fiskur af því mikla aflaskipi Geirnum!

Um leið og ég kom í bæinn dreif ég mig í aðgerð (það voru æðahnútar að hrjá mig eins og önnur gamalmenni með hrörnunarsjúkdóma) enda byrjar maður nýtt ár með því að láta klassa sig upp! Rétta byrjunin að byrja árið á því að breyta sér í staðinn fyrir að reyna að sætta sig við hvernig maður er (grunnhyggin eða???).

Nú framundan er svo skóli, ba-ritgerðarsmíð í dönsku og svo er ég búin að ráða mig sem málarameistara á NordicaSpa og mun ég hefja störf  þar um leið og ég er gróin sára minna. En að málum málanna, starfsmannasjóðnum! Nei bara rída ykkur, en ég er búin að segja upp íbúðinni minni á Skerjagörðunum og hyggst hefja búskap með Karli nokkrum Ásberg um leið og ég losna við íbúðina. Allt að gerast gott fólk!

Í dag skelltum við Tóta og Halldóra okkur út að leika með Unnari í snjónum sem fellur stanslaust hér í borginni. Já, lesendur góðir, maður á að varðveita barnið í sjálfum sér og leika sér reglulega með börnunum :haha:

En þar til næst. Góðar stundir.

Dóra

Tóta skrifaði
Takk fyrir daginn gamla....gaman í snjónum:) Skellum okkur aftur á morgun ef veður leyfir!
Gulla skrifaði
Dásamlegt að fá svona almennilegan snjó - nú þarf maður bara að verða sér úti um galla svo maður sé maður með mönnum í Skálagerðinu. Geirinn fer svo aftur á sjó í febrúar - þá fáum við meiri fisk :D
Svala skrifaði
Vona að þú sért að jafna þig gamla mín og til hamingju með að vera að fara að búa:) Heyrumst
Gulla skrifaði
Hvernig væri nú að fara að dusta rykið af blogginu ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.