DRAUMAVERÖLD HÖDDU PÖDDU

Þú getur ennþá snúið við...

27.07.2008 21:44:19 / hofsdora

Kátir dagar komnir og farnir...

Jepps hinni "árlegu" útilegu kvennfélagsins er lokið auk Kátra Daga. Bæði voru snilld, fyrir utan svarta rigningarskýið sem elti okkur.... En við splæstum í svo gott partýtjald að ekki væsti um okkur :haha:

Nokkrir góðir punktar úr ferðalaginu:
-"HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ ÞÉR GUÐMUNDUR!!! ÞETTA ER Í ANNAÐ SKIPTI!!!"
-Bennsi að leika kvensjúkdómalækni í partýspilinu
-Ási og Gummi í krokketkeppninni
-Unnar að labba yfir Ásbyrgisvöllinn, búinn að kúka á sig
-Gulla stungin af býflugu
-Allt helvítis heimabakaða brauðið sem aldrei ætlaði að klárast
-Fólkið að gaula í næsta rjóðri við okkur í Dæli á sunnudagskvöldið
-Tóta að brjálast í Hljóðaklettagöngunni
-sólin sem alltaf fór að skína í hvert skipti sem við pökkuðum saman
-Ég og Gamsi í kraftakeppni á Happy Days
-Lína og brúsinn hennar Svönu sem alltaf kom ajax-bragð úr
-ofl. ofl. ofl.

Set inn myndir sem segja svo allt sem upp á vantar og meira til í myndsafnið 8)
yfir og út
Hadda

» 8 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 07:14:12 / hofsdora

GÓÐAN HELVÍTIS DAGINN!

JÁ SÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆLL!:^)
Ég veit þið trúið því varla en jú, ég er vöknuð og á fótum. Á dauða mínum átti ég nú von en ekki þessu. Það vill nefnilega þannig til að þegar ég réði mig í vinnu þá var ég plötuð geðveikt. Hélt ég væri að ráða mig í venjulega vaktavinnu en nei, nei það láðist að nefna við mig að fyrri vaktin byrjar kl.06:00!!!! Ha?!
Þannig að ég var vöknuð kl.04:50 og komin í vinnu kl.05:45, djöfulsins klikkun. En svona þarf þetta víst að vera þar sem sumir kúnnarnir hreinlega hanga á snérlinum hér til þess að uppfylla sína æðstu drauma: að svitna ærlega á hlaupabretti kl.06:00. Ég á ekki orð. En sælir séu einfaldir því þeirra er guðsríki eða eitthvað álíka.

Það fer svo fjöllunum hærra að svona háttalag sé gott fyrir heilsuna, bæði kroppinn og geðið en ég leyfi mér að efast. Auðvitað er gott að hreyfa sig, því mun ég aldrei neita, þar sem hreyfing er ein besta lækning og vörn gegn alls konar kvillum. En að fara steinsofandi að hreyfa sig, með blóðsykurinn niður í brók getur ekki átt góðri lukku að stýra. Það hreinlega býður hættunni heim. Kallar á stórslys. Ég meina, hvað ætli mörg íþróttaslys eigi sér stað akkúrat á þessum tíma sólarhrings? maður spyr sig.

Neibb, að mínu mati á hreyfing helst ekki að eiga sér stað fyrir hádegi en ef hún á að eiga sér stað þá þá mæli ég með að vakna fyrst. Það er nefnilega ekki nóg að fara á fætur. Ég hef oft farið á fætur án þess að vakna og það er dödfarligt!!!
Veltið þessu fyrir ykkur áður en þið stígið á hlaupabretti dauðans í morgunsárið.

Yfir og út.

Hadda á Sauðanesi/Hofi/Skálagerði/Sogavegi


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 21:38:23 / hofsdora

Þetta blogg er tileinkað Tótu ;)

NÝTT ÆFINGARPRÓGRAMM


ÞAR SEM ÞÚ ERT YFIR 30 VERÐUR ÞÚ KANNSKI AÐ BYRJA
RÓLEGA OG AUKA HRAÐANN EFTIR ÞVÍ SEM VIKURNAR LÍÐA.

ÞETTA GÆTI REYNST ERFITT FYRIR SUMA.

HAFÐU SAMBAND VIÐ LÆKNI ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR Á
PRÓGRAMMINU.

RÚLLAÐU NIÐUR SÍÐUNA


> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
> > >
RÚLLAÐU UPP AFTUR.

ÞETTA ER NÓG Í DAG. FÁÐU ÞÉR SÚKKULAÐI.
hahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahaha.....snilld!

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 21:27:38 / hofsdora

Sjaldséðir hvítir hrafnar.

Sælt veri fólkið.
Ég veit það hefur ekki borið mikið á mér í bloggheiminum undanfarið en það er því enn meira að frétta.
Nr. 1: Ég lagði námið á hilluna að sinni og fór að vinna á NordicaSpa sem "helvítis málarinn" :d
Nr.2: Er flutt að Sogavegi 136 þar sem ég deili íbúð með Ása :haha:
Nr.3: Er byrjuð að lifa eftir breyttum lífsstíl - Lífstílsbreyting a la Tóta 8)
Nr.4: Ég, Ási, Tóta og Anna ætlum sennilega að skella okkur til útlanda í sumar, n.t.t. til Sardiníu 8)
Nr.5: Hef ákveðið að skrifa bók - ætla samt ekki að fara að grenja fyrst!!!
Nr.6: Ég skemmdi bílinn hans Ása á laugardaginn, jepps við erum að tala um kappakstursbílinn, augastein Ása og ég náði að rispa bílstjórahurðina, brettið og stuðarann :^)

S.s. ég er hægt og rólega að feta mig upp fjallveginn að betrí heilsu og hamingju - leiðin er brött og maður hrasar stundum og dettur en þegar maður er hættur að rúlla er víst ekkert annað í boði en að standa upp og halda áfram. Ofboðslega var þetta djúpt hjá mér - ooooooooooooj og væmið, ég skammast mín :^)

En þar til næst,
yfir og út - Drottningin Djúpúðga
 



» 12 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 18:45:47 / hofsdora

Annað líf, betra líf...

Sælt veri fólkið og gleðilegt árið!

Þá er jólafríinu lokið, maður kominn aftur í borgina og byrjaður í skólanum á ný. Þó jólafríið hafi verið fínt, mikið borðað af keti og sætindum, mikið sofið o.s.frv., þá er voða gott að reyna að koma einhverju skikki á tilveru sína aftur, t.d. að snúa sólarhringnum af næturvaktinni yfir á dagvaktina. Það liggur hreinlega við að maður sé hálfpartinn kominn með leið á kjöti og sætindum þótt ótrúlegt megi virðast. Ég varð allavega mjög glöð að fá fisk í gær sem Gulla bauð í, og það var nú ekki fiskur af dónalegri endanum heldur ferskur fiskur af því mikla aflaskipi Geirnum!

Um leið og ég kom í bæinn dreif ég mig í aðgerð (það voru æðahnútar að hrjá mig eins og önnur gamalmenni með hrörnunarsjúkdóma) enda byrjar maður nýtt ár með því að láta klassa sig upp! Rétta byrjunin að byrja árið á því að breyta sér í staðinn fyrir að reyna að sætta sig við hvernig maður er (grunnhyggin eða???).

Nú framundan er svo skóli, ba-ritgerðarsmíð í dönsku og svo er ég búin að ráða mig sem málarameistara á NordicaSpa og mun ég hefja störf  þar um leið og ég er gróin sára minna. En að málum málanna, starfsmannasjóðnum! Nei bara rída ykkur, en ég er búin að segja upp íbúðinni minni á Skerjagörðunum og hyggst hefja búskap með Karli nokkrum Ásberg um leið og ég losna við íbúðina. Allt að gerast gott fólk!

Í dag skelltum við Tóta og Halldóra okkur út að leika með Unnari í snjónum sem fellur stanslaust hér í borginni. Já, lesendur góðir, maður á að varðveita barnið í sjálfum sér og leika sér reglulega með börnunum :haha:

En þar til næst. Góðar stundir.

Dóra


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 17:03:54 / hofsdora

Jól á Sauðanesi.

Ágætu lesendur. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Vonandi hafið þið öll haft það sem allra best um jólin. Ég er stödd á Sauðanesi, kom þangað 18. desember og hóf þá málningarvinnu. Er sem sagt búin að mála holið og ganginn, og er þetta þvílík breyting til batnaðar. 23. desember tók svo við skreytingarstress en það hafðist nú allt, þannig að allt var tilbúið fyrir 6 á aðfangadag, sjúff. Jólin eru búin að vera frábær, fékk að sjálfsögðu sjúklega mikð af pökkum og kortum og sendi ég hér þakkir til allra sem voru svona höfðinglegir í minn garð. Hátíðin hefur svo einkennst af áti, hlátri, sjónvarpsglápi og spilamennsku. S.s. gæti ekki verið betra! Næst á dagskrá eru svo áramót sem ég mun fagna hér með fjölskyldu minni og vinum. Er að vonast til að Tóti i Túni verði hjá honum svo ég geti sprengt hurðarsprengju á skallan á honum eins og hér um árið múhahahaha... En þangað til næst, Verið góð við hvort annað og njótið hátíðarinnar. Jól-Drottningin.

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 09:45:38 / hofsdora

Sunnudagsmorgunn...

...og sólin hún situr við borðin svo yndisleg....EÐA HITT ÞÓ HELDUR! Ó, nei, mínir kæru lesendur, sú sem situr við borðið hjá mér er hvorki yndisleg né með sól(heim)skinsbros á vör, enda er kl.9:30 á sunnudegi! En þið skuluð samt ekki láta það hvarfla að ykkur að ég sé svona árrisul, nei það er meira þannig að ég er ekkert farin að sofa síðan í gær. Er nefnilega búin að liggja í flensu síðustu daga og tókst í leiðinni að snúa sólarhringnum svona hressilega vel við. Ég ákvað því að fara ekkert að sofa núna af því að ég er að fara í fyrsta prófið á morgun, jæks! Og det er mundlig eksamen i dansk ungdomskultur, fo´fa´en! En ég er s.s. búin að lesa í alla nótt um danska unglingamenningu og er því orðin nánast útlærð í því að vera danskur unglingur, eða svona hér um bil, á ca.90 bls eftir.

Var að ljúka bloggrúntinum með eitursterku kaffi svo ég sofni ekki (ekki alveg laus við meltingartruflanir) og mæli eindregið með því að þið kíkið á síðuna hans Gosa frænda hér http://www.reyniratli.blog.is/blog/reyniratli/ Snilldarpenni þar á ferð. Fór einmitt að hugsa voða mikið um þessa áætlun hreppsins heima á Þórshöfn um að byggja 2000 kinda bú til að bjarga byggðinni á svæðinu eftir að hafa lesið pistilinn hans Gosa um málið.

Gosi er voða svartsýnn á þetta allt saman og get ég að vissu leyti tekið undir þetta með honum. Pabbi minn hefur jú verið fjárbóndi í u.þ.b. 30 ár og ekki veit ég til þess að hann sé ríkur, hann leynir því þá ákaflega vel. Ég hef t.d. ekki tekið eftir því að hann hafi haft efni á því að borga aukastarfskrafti laun og þó er hann með um 800 fjár.

Ef þetta risabú á að skapa 2-3 ný störf þá má svo sem líta svo á að Bakkfjarðarbyggðinni sé borgið, eða hefur ekki alltaf verið talað um að það búi bara tveir þar? Annar getur gefið á kvöldin og hinn á morgnana múhehehehehe...

Held samt að Þórshafnarhreppur ætti að sleppa því að byggja þetta nýtískuhús og kaupa bara rollur fyrir afganginn. Það má svo bara skella þeim í salinn í þessu risastóra íþróttahúsi sem keypt var fyrir hlutabréfin sem hann seldi í Hraðfrystistöðinni (sterkur leikur...). Þær geta t.d. hitað húsið upp, en við sem þekkjum þarna til vitum hversu óhemjudýrt það er að kynda þarna. Það má raða skjátunum í veggina og dreifa þeim í sundlaugina líka til upphitunar. Ef þetta er gert svona sé ég ekki betur en þetta sé win-win-situation. Rekstri Versins bjargað -tékk! Bakkafirði bjargað- tékk! Og miklu fleiri rollur = fleiri störf = Þórshöfn bjargað- tékk! Vona bara að hreppsnefndin fari að mínum ráðum, því þá verðu allt í gúddí!

En jæja, aftur að unglingamenningunni athyglisverðu......

Yfir og út.

Dóra bjargvættur landsbyggðarinnar.


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 08:26:35 / hofsdora

"Sykursýki" er ættgeng!

Góðir hálsar.

Það er ekkert skrýtið að maður sé ofæta, þetta hefur erfst til mín í beinan karllegg!!! Afi minn heitinn, Hildbrandur Guðröður, var víst svona líka og ehemm ég ætla ekkert að segja um pabba minn af ótta við "NORÐURHÓLF!", þeir skilja sem eiga að skilja.

En s.s. já í föðurætt minni er sykursýki ættgeng og þá bæði eitt og tvö. Ég mun pottþétt fá nr.2 þar sem hún er svokölluð áunnin sykursýki en til þess að öðlast hana þarf maður að éta sykur eins og mófó alla ævi og helst að vera alltaf töluvert yfir kjörþyngd. Látum okkur sjá....ég ét sykur á hverjum degi - tékk, ég er helling yfir kjörþyngd - tékk, eina sykursýki tvö um fimmtugt takk!!! 8|

En aftur að Guðröði afa. Hann var nefnilega með þessa sykursýki nr.2 og Halldóra amma tók það að sér að passa hann, þ.e.a.s hvað hann lét ofan í sig en hann mátti alls ekki láta sykur inn fyrir sínar varir. Nú þegar að einhver annar tekur svona ábyrgð á veikindum manns þá gefur það auga leið að þó maður geri eitthvað sem sé slæmt hvað sjúkdóminn varðar gerir það ekkert til á meðan sá sem er ábyrgur veit ekki af því, ekki satt? Það var einmitt það sem afi gerði, híhíhí.

Amma ákvað að leggja fyrir hann einfalt próf einhvern tímann. Það var fiskur á borðum í hádeginu einu sinni fyrir langalöngu í Kaupfélaginu Fram í Norðfirði. Á borðum var líka tómatsósa, en aðeins fyrir þá sem sykur máttu fá. Afi sat við borðið ásamt börnum sínum og borðaði samviksusamlega sinn fisk án tómatsósu. Amma ákveður að bregða sér fram en fer aðeins út úr dyragættinni og bíður fyrir framan herbergið í smá stund og kemur svo aftur inn - hún var nefnilega að prófa afa. Um leið og amma fer út grípur afi tómatsósuflöskuna og fer að drekka úr henni og amma kemur strax aftur inn og verður vitni að þessu og mælir þá þessi fleygu orð: "Ég held þér sé ekki sjálfrátt Guðröður!" hahahahahahahaha

Það er nefnilega málið, manni er alls ekki sjálfrátt! Ég er alveg eins og afi. Ég ákveð að hætta að borða sykur af því ég er alltaf þung og get átt á hættu að verða sykursjúk. En um leið og enginn sér til gúffa ég í mig - af því að það lætur mann ekki fitna eða verða sykursjúkan! :$

Það má í raun segja að ég sé nú þegar orðin sykursjúk, þar sem ég er sjúk í sykur! En það er svona, hver hefur sinn djöful að draga, best ég drífi mig bara á O.A. fund (Overeaters anonymous)......

Kveðja

Dóra Feita Drottning.


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 14:30:35 / hofsdora

Strákar mínir!

Sælt veri fólkið.

Um daginn fór ég að versla í bónus sem er náttúrlega ekki í frásögur færandi nema hvað að þegar ég stend á kassanum og er að  raða í pokana finn ég þess ægilega góðu karlmannsilmvatnslykt. Eins og flestir þá tengi ég lykt við annað hvort fólk, aðstæður, atvik eða bara hvað sem er. Því kom umsvifalaust upp í hugann mynd af ungum, myndarlegum, vel klæddum og síðast en ekki síst vellyktandi karlmanni. Ég flýti mér að líta upp til að gæða mér á augnakonfektinu en viti menn; fyrir framan mig stendur gamall maður í krumpugallajakka og með sixpensara á höfðinu. Ég var náttúrulega fyrir vonbrigðum til að byrja með en svo hugsaði ég með mér: "Gott hjá þér gamli minn!". ;)

Það er nefnilega ekkert sem segir að maður eigi að hætta að hugsa um útlitið þegar maður fer að eldast og þessi gamli höfðingi var sko alveg með ilmvötnin á hreinu og greinilega fatatískuna líka þar sem krumpugallar er aftur "inn" nú á dögum.

Til samanburðar langar mig að nefna að ég þurfti svo að skjótast í Húsasmiðjuna að lokinni Bónusferðinni. Þegar ég var búin að þramma þar um á pilsi og leðurstígvélum (já ég skellti mér í skárri fötin þennan dag, enda átti pabbi afmæli :D) og viða að mér því sem mig vantaði dreif ég mig á kassan þar sem ungur maður beið í ofvæni eftir að fá að afgreiða mig. En sjæse hvað ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég kom á kassann! Af þessum unga manni lagði nefnilega sterka kallafýlu, OJBARASTA!!!! Ekkert verra en gömul líkamslykt!

Þetta er náttúrulega bara engan veginn í boði! Passa þetta strákar! Það er nú helvíti hart þegar ellilífeyrisþegarnir eru líklegri til að komast á séns heldur en ungi karlpeningurinn!

Langaði bara að deila þessu með ykkur.

Dóra Drolla.


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 23:57:54 / hofsdora

Afmælis"barn" dagsins!

Hæ.

Pabbi minn er 63 ára í dag. Til hamingju með það pops minn!!:D

P.S. Í dag voru seldir miðar á Þórshafnarmótið og mig langar bara að benda á það að gert var ráð fyrir 90 manns á skemmtun og ball en ég held það sé búið að selja u.þ.b 120 as we speak, eða read. Til hamingju með það mótsnefnd :D Þetta mun vera aðsóknarmet í sögu þessa ágæta mótahalds!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 01:19:22 / hofsdora

Þórshafnarmót næstu helgi!

Kæru lesendur.

Jæja, hef ákveðið að taka mig á í bloggmálunum sem og öðrum málum í mínu lífi. Þar sem ég hef ekki bloggað svo lengi af neinu viti þá held ég að það sé rétt að stiklað verði á stóru. Hér koma nokkrir punktar um hvað ég hef verið að gera síðan í júlí:

  • Hætti að vinna um miðjan júlí af heilsufarsástæðum og fór aftur til Reykjavíkur
  • Fór til Barcelona með Kvennfélaginu 1.-5. September :haha:
  • Fór til Frankfurt með Ása og vinnunni hans 13.-16. September :haha:
  • Byrjaði svo aftur í skólanum og er núna að vinna að því að klára seinna árið í dönsku
  • Fór í nef-og hálskirtlatöku í október jakk, jakk, jakk mæli ekki með því 8|

Núna er maður svo að vinna í skemmtidagsskrá fyrir næstu helgi en þá er einmitt hið árlega Þórshafnarmót og að sjálfsögðu dugir ekkert minna en Drottningin sjálf sem veislustjóri þar 8)P.S. Þórhildur er í nefnd þannig að það er skylda að mæta!!!! 8|

Eitt að lokum, stelpur muniði eftir þessu á Barce; "Gó fokk jor self!" "Gulla, ég fékk lánaða sápu hjá þér." "GUÐ ER GÓÐUR!" :haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:

Þangað til næst

Dronning Halldóra.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 23:44:46 / hofsdora

I´m not dead...

....just floating!

Bara að láta vita af mér, það er brjálað að gera eins og er en ég mun finna tíma fljótlega til að blogga. En þangað til getið þið lesendur góðir velt þessu fyrir ykkur:

Ef við myndum ímynda okkur að heimurinn væri staður þar sem aðeins væri einn 100 manna bær, þá liti hann þannig út:

Þar væru :
57 Asíubúar
21 Evrópubúi
14 frá Western Hemisphere, both North and South
8 Afríkubúar

52 væru karlmenn
48 væru konur

70 væru ekki-hvítir
30 væru hvítir

30 væru kristinnar trúar
70 annarar trúar

89 væru gagnkynhneigðir
11 væru samkynhneigðir

6 einstaklingar ættu 59% af auðnum - og þeir væru allir frá USA

80 byggju ekki í húsi
70 væru ólæsir
1 væri við dauðans dyr; 1 að fæðast
1 (já aðeins 1) hefði menntun aðra en grunnskóla
1 ætti tölvu

Þegar litið er á heiminn frá svona samþjöppuðu sjónarhorni verður þörfin fyrir samþykki annara, skilningi og menntun allt í einu sýnilegri.

Og meira að hugsa um:
Ef þú vaknaðir nokkurnveginn heilbrigð/ur í morgun, þá ert þú heppnari en sú milljón manna sem ekki lifa af þessa viku.

Ef þú hefur aldrei upplifað hættuna á stríði, hræðsluna við pyntingar eða sársaukan af hungri, þá ert þú betur sett/ur en 500 milljónir manna í heiminum.

Ef þú getur gengið inn í kirkjuna þína án þess að eiga á hættu að verða handtekin/n, pyntuð/aður eða drepin/n
- þá ert þú betur sett/ur en 3 milljarðar manna í heiminum.


Ef þú átt mat í ísskápnum, föt í skápunum, þak yfir höfuðið og stað til að sofa á - þá ert þú ríkari en 75% af heiminum.

Ef þú átt pening í bankanum eða í veskinu - þá ert þú meðal ríkustu 8% í heiminum.

Ef foreldrar þínir eru ennþá á lífi og ennþá gift, þá ert þú mjög heppin/n, jafnvel í hinum vestræna heimi.

Ef þú getur lesið þessi skilaboð þá ert þú heppnari en rúmlega 2 milljarðar manna - sem eru alveg ólæsir.

P.s stal þessu copy-paste af netinu þannig að ég tek enga ábyrgð á þessu eða þeim stafsetningar/málfarsvillum sem kynnu að leynast í þessu.

Yfir og út.

Dóra Drottning.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 14:28:00 / hofsdora

Úbbadeisí!

Kæru lesendur mínir nær og fjær.

Ég biðst innilegrar afsökunar á bloggleysi en drottningin hefur verið frá vegna óviðráðanlegra ástæðna. Ég ætla ekki að lofa upp í ermina á mér eina ferðina enn með því að segja ykkur að hér muni hver færslan á fætur annari birtast því ég veit ekkert hvernig mun liggja á rithöfundinum í nánustu framtíð.

Ég verð því að biðja ykkur tryggu lesendur mína að hafa biðlund, ég mun snúa aftur og ætla mér þá að verða enn öflugri penni en áður 8)

En þangað til......hafið það gott og notið tannþráð.

kv. Drottningin


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 17:30:58 / hofsdora

AT LAST!

Ágætu lesendur.

Sauðburði er hér með formlega lokið á Sauðanesi, allavega af minni hálfu. Er búin að vera í 3 vikur að strita hjá föður mínum og frú og hef þess vegna verið sambandslaus við umheiminn. En ég er allavega búin að bjarga atvinnurekstri föður míns 8)

Ég er viss um að Stephen King hefur einhvern tímann verið í sauðburði, allavega kannast ég mjög við ýmsan hrylling sem ég varð vitni hér úr bókum hans og myndum. Þar mætti t.d. nefna gemsa sem hvolfdi úr sér leginu eftir burð, en öfugt leg er alveg eins og mannætuormur sem ég sá í "Dreamcatchers", creepy.  8|

Á morgun er svo planið að bruna austur á Norðfjörð á Saabíat. Á miðvikudaginn mun ég svo hefja pensilinn á loft og mála bæinn rauðan ;) 

Þannig að örvæntið eigi, ég er ekki hætt að blogga, bara afskaplega upptekin. Hér munu birtast hver færslan á fætur annari eftir að ég verð búin að koma mér fyrir á Nesk.

En þangað til....

Adios amigos - D.H.


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 08:59:34 / hofsdora

Tillykke, tillykke!!!

TIL HAMINGJU VINSTRI-GRÆNIR OG TIL HAMINGJU ÉG MEÐ AÐ VERA BÚIN MEÐ PRÓFIN 8)

p.s. sendi öllum Framsóknarmönnum mínar innilegustu samúðarkveðjur...múhehehe...nei í alvöru sko....ahahahaha.....ég meina þetta....en svona án gríns hefði ég viljað sjá þetta koma fyrir Sjálfstæðisflokkinn!

Ætla að skella mér niður á Nordica og skella einni umferð á........meira síðar!

Dronningen.

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4